„Við Guðni heimsóttum nokkur dvalar-og hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ á laugardaginn,“ segir Eliza Reid í nýrri færslu á Instagram.
Hún greinir fylgjendur sínum frá að íbúarnir búi nú við heitavatnsleysi og þar á meðal búa líka Grindvíkingar sem þurftu að yfirgefa heimili sín í nóvember.
„Ég dáist svo að því hvað eldri kynslóðin mætir þessum hamförum af miklu æðruleysi.“
Þá heimsóttu hjónin einnig aðgerðastjórnstöð Almannavarna í Reykjanesbæ:
„Þökkuðum fyrir allt það ósérhlífna starf sem nú er unnið við erfiðar aðstæður, þegar allt kapp er lagt á að tryggja fólki á svæðinu aðgengi að vatni svo fljótt sem auðið er.“
Af myndunum af dæma var forsetahjónunum vel tekið og hamingjan skein af andlitum þeirra.
Hér að neðan má sjá færslu Elizu á Instagram auk fleiri mynda:
View this post on Instagram