Framsóknarflokkurinn hefur kært yfirkjörstjórn í Suðvesturkjördæmi.
Samkvæmt frétt mbl.is hefur landskjörstjórn borist kæra frá Framsóknarflokknum í Suðvesturkjördæmi en kæran barst í gær. Það staðfestir framkvæmdarstjóri landskjörstjórnar, Ástríður Jóhannsdóttir.
Landskjörstjórn hefur borist kæra frá Framsóknarflokknum í Suðvesturkjördæmi.
Í samtali við mbl.is segir Ástríður að landskjörstjórn ætli sér ekki að greina frá efni kærunnar eins og staðan er í dag. Í loks dags rennur kærufresturinn út.
„Svo er okkar hlutverk að gefa umsögn til Alþingis um efni kærunnar í kjölfarið,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Það var hæstaréttarlögmaðurinn Gestur Jónsson sem sendi inn kæruna fyrir hönd Framsóknar í Suðvesturkjördæmi en hann segir kæruna snúast um viðbrögð yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis við umkvörtunum umboðsmanna Framsóknar.
„Meira get ég ekki sagt þér.“