Laugardagur 28. desember, 2024
-7.2 C
Reykjavik

Fríða Ísberg – einstakur árangur: „Hún verður þarna innan um stærstu nöfn í heimi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Skáldsagan Merking eftir Fríðu Ísberg, hefur verið seld til 14 málsvæða. Fyrsta upplag Merkingar seldist upp hjá útgefanda, en bókin var snarlega endurprentuð í 1500 eintökum og henni komið í bókabúðir. Bókin vann Bóksalaverðlaunin 2021 auk þess að vera tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Fríða hefur áður gefið út ljóðabækurnar Slitförin og Leðurjakkaveður.

Að sögn Emblu Ýrar Teitsdóttur kynningarstjóra Forlagsins er um að ræða einstakan árangur fyrir íslenskan höfund með fyrsta skáldverk.

Hún segir Faber & Faber bókaforlagið vinna með stærstu nöfnum bókmenntaheimsins um þessar mundir. „Hún verður þarna innan um stærstu nöfn í heimi.“

„Þetta er gígantískur árangur fyrir fyrstu skáldsögu hjá höfundi.“ Embla segir í samtali við Fréttablaðið að útskýra megi árangurinn með efnistökunum, sem eiga sérstakt erindi við samtímann, og ekki bara hérlendis.

„Þetta er klárlega það, að hún talar svo mikið inn í samtímann um slaufunarmenningu. Hún er að taka þetta skref, að takast á við það. Þetta á erindi við allan vesturheiminn í augnablikinu.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Forlaginu. Breski bókaútgefandinn Faber & Faber keypti réttinn í Bretlandi, en fyrirtækið var stofnað árið 1929 og gefur út bækur margra fremstu rithöfunda heims, á borð við Milan Kundera, Sally Rooney og Kazuo Ishiguro.

- Auglýsing -

Fyrst­a skáld­sag­a Fríð­u Ís­berg seld til fimm land­a.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -