Söngvarinn Friðrik Ómar Hjörleifsson mun leysa Loga Bergmann Eiðsson af í Síðdegisþættinum á útvarpsstöðinni K100 í febrúar.
Logi Bergmann fór í ótímabundið frí eftir að hafa verið tengdur við mál Vítalíu Lazarevu. Hún sagði frá því að þjóðþekktur fjölmiðlamaður hefði gengið inn á sig og fyrrverandi kærasta sinn, Arnar Grant, á hótelherbergi síðastliðið haust. Arnar Grant er giftur og samkvæmt Vítalíu reyndi hann að kaupa þögn mannsins með því að bjóða honum að stunda kynferðislegt samræði við hana.
Vítalía hafði meðal annars birt skjáskot af samskiptum sínum við Loga Bergmann, sem bendluðu hann við málið. Þegar hann var loks nafngreindur sem fjölmiðlamaðurinn sem um ræddi, steig hann til hliðar úr störfum sínum sama dag. Hann skrifaði síðan yfirlýsingu á Facebook þar sem hann lýsti sig saklausan af ásökununum. Hann hefði vissulega óvart gengið inn á umrætt hótelherbergi en atburðarásin hefði endað þar og hann ekki brotið á neinum.
Þeir Logi Bergmann og Siggi Gunnars voru tveir með Síðdegisþáttinn á K100 en eftir að Logi Bergmann hvarf frá hefur Siggi Gunnars séð um þáttinn einsamall. Þar til nú.
Friðrik Ómar greindi frá því á Instagram-síðu sinni að hann yrði í Síðdegisþættinum með Sigga Gunnars alla virka daga í febrúar, milli klukkan 16 og 18. Ekki er vitað hvað tekur við eftir að febrúarmánuði lýkur.
„Líf og fjör!“ segir Friðrik Ómar í færslu sinni.
Söngvarinn Friðrik Ómar Hjörleifsson mun leysa Loga Bergmann Eiðsson af í Síðdegisþættinum á útvarpsstöðinni K100, í febrúar að minnsta kosti.
Logi Bergmann fór í ótímabundið frí eftir að hafa verið tengdur við mál Vítalíu Lazarevu. Hún sagði frá því að þjóðþekktur fjölmiðlamaður hefði gengið inn á sig og fyrrverandi kærasta sinn, Arnar Grant, á hótelherbergi síðastliðið haust. Arnar Grant er giftur og samkvæmt Vítalíu reyndi hann að kaupa þögn mannsins með því að bjóða honum að stunda kynferðislegt samræði við hana.
Vítalía hafði meðal annars birt skjáskot af samskiptum sínum við Loga Bergmann, sem bendluðu hann við málið. Þegar hann var loks nafngreindur sem fjölmiðlamaðurinn sem um ræddi, steig hann til hliðar úr störfum sínum sama dag. Hann skrifaði síðan yfirlýsingu á Facebook þar sem hann lýsti sig saklausan af ásökununum. Hann hefði vissulega óvart gengið inn á umrætt hótelherbergi en atburðarásin hefði endað þar og hann ekki brotið á neinum.
Þeir Logi Bergmann og Siggi Gunnars voru tveir með Síðdegisþáttinn á K100 en eftir að Logi Bergmann hvarf frá hefur Siggi Gunnars séð um þáttin einsamall. Þar til nú. Friðrik Ómar greindi frá því á Instagram-síðu sinni að hann yrði í Síðdegisþættinum með Sigga Gunnars alla virka daga í febrúar, milli klukkan 16 og 18. Ekki er vitað hvað tekur við eftir að febrúarmánuði lýkur.
„Líf og fjör!“ segir Friðrik Ómar í færslu sinni.
View this post on Instagram