Ökumaður vespu var í gær stöðvaður grunaður um að vera ölvaður við akstur. Með honunum á vespunni var fimm ára barn án öryggisbúnaðar. Lögregla segir að móðir barnsins hafi auk þess ekki gefið leyfi fyrir þessu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Nóttin var nokkuð annasöm en alls voru 115 mál skráð hjá henni frá því klukkan 5 síðdegis í gær. Mest var um hávaðatilkynningar og ölvun við akstur. Oft var hávaðan þar sem stúdentar fögnuðu námsáföngum.
Þrjár líkamsárásir voru tilkynntar í miðbænum. Maður réðst á dyravörð og skar hann á fæti með brotinni flösku.
Maður tilkynnti stuld á rafmagnshlaupahjóli í austurborginni í gær. Hann sagði hinn grunaða þjóf vera á hlaupahjóli og hélt á öðru. Viðkomandi hljóp á eftir manninum og kom þar sem hann rétti öðrum manni hjólið. Sá grunaði fullyrti að hann sá ætti hjólið. Hann tók á rás þegar sá sem tilkynnti atvikið sagði það ekki rétt.