Fyrrverandi prestur efast um ásakanir.
Friðrik Schram, fyrrverandi prestur, segir í nýjum pistli á Facebook að ekki sé hægt að taka mark á nafnlausri ásökun manns á hendur séra Friðriki Friðrikssyni. Í nýrri bók Guðmundar Magnússonar, sagnfræðings, um séra Friðrik er að finna frásögn manns á áttræðisaldri þar sem hann greinir frá því að séra Friðrik hafi káfað á sér þegar hann var 11 ára gamall. Þá lýsi fjöldi drengja því að hafa ekki líkað við atlot hans. Séra Friðrik hefur lengi þótt einn af virtustu mönnum landsins og hefur verið dásamaður áratugum saman, bæði fyrir og eftir andlát hans.
Friðrik Schram segir meðal annars í pistlinum að séra Friðrik hafi ekki haft getu vegna aldurs og líkamsástands til að áreita aðra kynferðislega. Sjálfur þótti Friðrik Schram umdeildur í starfi og fór aldrei í felur með andúð sína á samkynhneigðu fólki.
Hægt er að lesa pistilinn hér fyrir neðan