Það er ekki oft sem hægt að kaupa lúxushús í Laugardalnum sem fyrrverandi Ungfrú Íslands á en það er hægt í dag því Kristín Bernharðsdóttir og Sigurður Baldursson, eiginmaður hennar, hafa ákveðið að selja stórkostlegt Sigvaldahús sitt á besta stað í Laugardalnum.
Kristín var kjörin Ungfrú Íslands árið 1979 og giftist Sigurði síðar á lífsleiðinni. Eiga þau saman þrjú börn.
Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, fataherbergi, gestasalerni, tvö baðherbergi, stofa, borðstofa, eldhús, sjónvarpsstofa, skrifstofa, líkamsræktarherbergi, þvottaherbergi og geymslur. Athygli vekur að í fasteignaauglýsingunni er sagt að húsið sé skráð 380 fm að stærð en sé í raun 480 fm. Hjónin tilgreina ekkert verð og óska eftir tilboðum í húsið.
Hægt er að sjá myndir og nánari lýsingu hér