„Fréttastofan beitir valdi sínu til að þegja um ávirðingar í garð starfsmanna hennar,“ bendir Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra Íslands í nýjum pistli á heimasíðu sinni. Þá vænir Björn fréttastofu Rúv um tvöfeldni með því að herja einvörðungu á Páli Vilhjálmssyni, framhaldsskólakennara og moggabloggara, um ummæli hans um kynsegin einstaklinga, – en ekki þau ummæli sem Páll hefur látið út um starfsmann fréttastofu stofnuninnar og formann Blaðamannafélagsins, Sigríði Dögg Auðunsdóttur.
„Framhaldsskólakennarinn lýsir því sem hann telur staðreyndir um ámælisverð vinnubrögð starfsmanna fréttastofunnar og þar á bæ þegja menn þunnu hljóði en upplýsa ekki hvort framhaldsskólakennarinn hafi eitthvað til síns máls,“ ritar fyrrum dómsmálaráðherra Íslands Björn Bjarnason.
Páll Vilhjálmsson ásakaði Sigríði Dögg um að hafa reynt að skjóta undan 100 milljónum í skatt vegna leigutekna í gegnum Airbnb.
„Þetta er viðkvæmt mál. Önnur mál sem framhaldsskólakennarinn hefur reifað lengi eru ekki síður viðkvæm og snúa þau að fréttastofu ríkisútvarpsins og stofnuninni sjálfri. Af hálfu fréttastofunnar er ekkert gert til að upplýsa sannleiksgildi þeirra mála,“ ritar Björn Bjarnason.
Sjá nánar:
Páll Vilhjálmsson ásakar Sigríði Dögg um að hafa vantalið 100 milljónir til skatts