Lögreglu barst tilkynning skömmu fyrir miðnætti í gær um mann sem ógnaði starfsfólki og gestum með hnífi á bar í hverfi 108. Maðurinn var handtekinn og er hann grunaður um vopnalagabrot, eignaspjöll, hótanir og vörslu fíkniefna. Síðar um nóttina var lögregla kölluð út vegna innbrotsþjófa í Breiðholti og Kópavogi. Sá fyrri hafði reynt að brjóta sér leið að peningakassa verslunarinnar án árangurs en sá seinni braut rúðu í bílalúgu og náði sjóðsvél og posatölvu. Ekki leið á löngu þar til lögregla fann manninn og þýfið.
Fyrr um kvöldið handtók lögregla ökumann í Laugardal en sá er grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna, árekstur og afstungu auk nytjastuld ökutækis. Þá hafði maðurinn stolið bifreið og ekið henni á tvær aðrar bifreiðar með þeim afleiðingum að þær skemmdust. Maðurinn var látinn gista í fangaklefa lögreglu. Þá sinnti lögregla reglubundnu umferðareftirliti og öðrum minniháttar málum.