Gísli Marteinn Baldursson skýtur bylmingsfast á Sjálfstæðisflokkinn í nýrri færslu á X (áður Twitter).
Spjallþáttastjórnandinn síkáti og fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Gísli Marteinn Baldursson, hæðist að sínum gamla flokki í nýrri færslu á samfélagsmiðlinum X. Þar telur hann upp hluti sem ríkisstjórnin stendur fyrir og segir það sjálfsagt sérstakt fyrir frjálslynda arm flokksins.
„Örugglega spes fyrir frjálslynd í XD sem sjá íslandsmet í ríkisútgjöldum, höft á innflutning landb.vara, minni einkarekstur en í Svíþjóð, skattahækkanir— að eina sem flokkurinn talar um eftir helgina er stuðningur við hvalveiðar, andúð á Borgarlínu og fangabúðir fyrir flóttafólk.“
Nokkrum mínútum síðar birti Gísli Marteinn viðbótarfærslu þar sem hann finnur sig knúinn til að árétta að í Sjálfstæðisflokknum sé „svo sannarlega til sterk frjálslynd taug“. Þá færslu má lesa hér fyrir neðan:
„Af því innan XD er svo sannarlega til sterk frjálslynd taug þótt andstæðingar flokksins láti oft eins og hún sé ekki til staðar. Frjálslyndi bæði í einstaklingsfrelsi og efnahagsmálum. En þessi misserin eru óneitanlega önnur málefni talsvert meira áberandi.“