Gísli Bragi Hjartarson, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, er fallinn en hann var 85 ára gamall. Akureyri.net greindi frá andláti hans. Gísli fæddist á Akureyri árið 1939 og voru foreldrar hans Lilja Sigurðardóttir og Hjörtur Gísli Gíslason og áttu þau fimm börn alls. Gísli var mikill íþróttagarpur og keppti á skíðum og í frjálsum íþróttum og þá stundaði hann golf áratugum saman og var meðal annars formaður og framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar í nokkur ár. Hann var einn virkur þátttakandi í stjórnmálum og var bæjarfulltrúi fyrir Alþýðuflokkinn á Akureyri frá 1986 til 1998 og gegndi formennsku í ýmsum nefndum á þeim tíma. Gísli lætur eftir sig eiginkonu og sex börn.