Þriðjudagur 4. febrúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Gísli Rafn nýr framkvæmdastjóri Rauða Krossins eftir að hafa dottið af þingi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rauði krossinn á Íslandi hefur ráðið Gísla Rafn Ólafsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins og hefur hann störf í þessari viku en greint er frá þessu í tilkynningu frá hjálparsamtökunum.

„Gísli Rafn var um langt skeið yfirmaður neyðarmála hjá NetHope, regnhlífasamtökum 60 stærstu hjálparsamtaka í heimi þar sem hann kom að viðbragðsstjórnun vegna fjölmargra umfangsmikilla náttúruhamfaravíða um heim. Gísli Rafn var einnig hluti af alþjóðlegu útkallsteymi sérfræðinga hjá Sameinuðu þjóðunum, UNDAC, sem kallað er út þegar stórar hamfarir dynja yfir og nauðsynlegt er að virkja viðbragð alþjóðasamfélagsins. Auk þess var Gísli Rafn stjórnandi Íslensku Alþjóðabjörgunarsveitarinnar þegar hún fór til Haiti árið 2010 í kjölfar mannskæðs jarðskjálfta þar í landi,“ segir í tilkynningunni en Gísli var þingmaður Pírata frá 2021 til 2024.

„Rauði krossinn á Íslandi gegnir lykilhlutverki í að styðja við þá sem þurfa mest á aðstoð að halda, bæði innanlands og utan. Ég hlakka til að vinna með þeim öfluga hópi starfsmanna og sjálfboðaliða sem starfa hjá Rauða krossinum við að efla starfsemi félagsins og tryggja að við verðum áfram til staðar fyrir þá sem þurfa á okkur að halda.“ segir Gísli Rafn um ráðningu sína.

“Með ráðningu Gísla Rafns hefur Rauði krossinn fengið reynslumikinn og framsækinn leiðtoga sem mun vinna að því að styrkja og efla starfsemi félagsins, bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.” sagði Silja Bára Ómarsdóttir, formaður Rauða krossins á Íslandi.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -