Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nógu að snúast frá klukkan 05:00 í morgun og til 17:00 í dag, samkvæmt dagbók hennar.
Í hverfi 108 barst lögreglu tilkynningu um aðila sem var í annarlegu ástandi en honum var ekið til síns heima.
Í miðborg Reykjavíkur komu upp nokkur mál en helst ber að nefna innbrot og þjófnað í fyrirtæki en málið er í rannsókn. Einnig var óvelkomnum aðila í húsnæði vísað á brott og þá barst tilkynning um líkamsárás en lögreglan skrifaði skýrslu um málið. Þá var einnig brotist inn í geymslu í hverfinu og ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Kom síðan í ljós að ökumaðurinn reyndist án ökuréttinda og var hann því handtekinn. Eftir blóðsýnatöku var honum sleppt.
Aðili var kærður fyrir vöslur fíkniefna í hverfi 103 en lögreglan lagði hald á fíkniefnin og ritaði skýrslu. Annar aðili var kærður fyrir sama sakarefni í hverfi 104. Í sama hverfi var síðan tilkynnt um líkamsárás en einn var handtekinn á vettvangi og gisti fangaklefa vegna málsins.
Ökufantur var stöðvaður í Hafnarfirði en hann ók á 131 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslu. Annar glanni var stöðvaður á Álftanesi á 116 km/klst hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 70 km/klst.
Í Kópavogi barst tilkynning snemma í morgun um framkvæmdarhávaða en lögreglan sinnti málinu.