Það hefur stundum verið sagt að fólk eigi ekki að kasta grjóti úr glerhúsi en það virðist vera tilfellið þegar kemur að Sjálfstæðisflokknum ef marka má frétt Vísis um flokkinn í dag.
Það er greint frá því að flokkurinn hafi þegið 167 milljónir króna þrátt fyrir að hann hafi verið skráður sem félagasamtök en ekki sem stjórnmálaflokkur en skráningu hans var ekki breytt fyrr en árið 2022. Hann fékk því að minnsta kosti einn styrk rangt skráður. Margir Sjálfstæðismenn hafa harðlega gagnrýnt Flokk fólksins fyrir sömu mistök og hafa farið fram á flokkurinn endurgreiði ríkissjóði þá styrki sem flokkurinn hefur fengið undir rangri skráningu.
„Mál sem kemur upp núna er þetta styrkjamál til flokksins, sem er auðvitað ekki stjórnmálaflokkur enn þá. Að þau ætli ekki að skrá sig strax sem stjórnmálaflokk heldur bíða landsfundar. Það á að vera algjörlega skýr krafa á Flokk fólksins núna, annað hvort birta þau hlutina eins og þau hefðu gert ef þau hefðu verið að uppfylla skilyrðin, birta alla hluti sem stjórnmálaflokkar eiga að gera, sem fá þessa ríkisstyrki, eða skila peningunum,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Bítinu áður en greint hafði verið frá mistökum Sjálfstæðisflokknum.
Þá greinir Vísir einnig frá því að Píratar, Sósilistaflokkurinn og Vinstri Græn hafi gert svipuð mistök.