Laugardagur 18. janúar, 2025
0.8 C
Reykjavik

Greinar sem snerta daglegt líf okkar: „Staðráðin í að auka hlut þeirra í íslensku atvinnulífi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Umfang hönnunar, arkitektúrs og annarra skapandi greina hefur farið vaxandi í dönsku hagkerfi undanfarin ár. Tugir þúsunda starfa innan skapandi greina hafa skapast þar í landi og hefur vöxtur í útflutningi greinanna verið um 4.8% árlega síðan 2011.

Árið 2020 fóru útflutningsverðmæti skapandi greina yfir 14 milljarða evra en tískuvarningur er til að mynda fjórða stærsta útflutningstoð Danmerkur. Dönsk stjórnvöld hafa lagt aukinn þunga í stefnumótun fyrir skapandi greinar með sérstökum sóknaráætlunum, segir á vef ráðuneyti Menningar- og viðskipta.

„Hönnun og arkitektúr snerta daglegt líf okkar á ótal vegu. Það er gott að fá þann innblástur um málefni hönnunar og arkitektúrs, út frá sjónarhóli skapandi greina, mikilvægi sjálfbærrar framleiðslu og hagnýtingar hönnunarhugsunar fyrir atvinnulíf og stjórnvöld. Danir leggja mikla áherslu á að auka útflutningsverðmæti skapandi greina með markvissum hætti. Við getum lært margt af þeim á sviði hönnunar og skapandi greina og við erum staðráðin í að auka hlut þessara atvinnuvega í íslensku hagkerfi.“ Þetta segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra þegar hún kynnti sérHönnun og hugvit sem útflutningsvara og hlutverk hennar í ímyndarsköpun og verðmætasköpun í Kaupmannahöfn í vikunni.

Ráðherra heimsótti helstu lykilaðila hönnunar í Danmörku, þar sem talið DDC – dönsku hönnunarmiðstöðina, DAC miðstöð arkitektúrs í Danmörku og Creative Danmark sem styður við skapandi greinar í alþjóðlegri markaðssókn.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -