Laust fyrir klukkan fjögur í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um innbrot. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglu í Kópavögi og Hafnarfirði. Tveir óprúttnir innbrotsþjófar höfðu brotið sér leið inn á geymslusvæði fyrir flutningsgáma. Þegar lögreglu bar að garði voru þrjótarnir í fullu fjöri í einum gámanna. Voru því gerendur gripnir og gómaðir glóðvolgir í gámi á geymslusvæðinu og í kjölfarið geymdir í þágu rannsóknar.
Samkvæmt dagbók lögreglu var talsverður erill í nótt, þá sérstaklega í kringum skemmtanalífið í miðbæ Reykjavíkur. Var lögreglan kölluð til, rétt fyrir klukkan tvö í nótt, vegna óðs gleðipinna sem ráðist hafði á dyravörð sem sinnti störfum sínum. Gleðipinninn gekk því ekki neitt inn um gleðinnar dyr. Málið var leyst á vettvangi og verður rannsakað sem líkamsárás.
Löngu hefur sannað sig að sýnileiki og nálægð lögreglu hefur jákvæð áhrif. Athyglissjúkur berserkur fann sig samt knúinn til að ráðast á annan beint fyrir augum lögreglumanna sem sátu í bifreið sinni. Snarir í snúningum gengu lögreglumennirnir beint til verks og handtóku umsvifalaust. Berserkurinn var vistaður í þágu rannsóknar.
Þá voru í það minnsta þrír stöðvaðir á götum borgarinnar vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna. Reyndist einn þeirra hafa fíkniefni meðferðis auk þess að vera án ökuréttinda.