- Auglýsing -
Karlmaður um fertugt var í gær í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. maí að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Kemur þetta fram í tilkynningu lögreglunnar.
Maðurinn var handtekinn í fyrradag í kjölfar rannsóknar lögreglu á innbroti og þjófnaði á umtalsverðum fjármunum úr verðmætaflutningabifreið í Hamraborg í Kópavogi fyrir rúmum fimm vikum síðan.
Lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.