Ekkert skólastarf fer fram í Grunnskóla Sandgerðis í dag og þurfa nemendur í 1-5. bekk að vera heima hjá sér í sóttkví. Nemendur á eldri skólastigum fá að mæta í skólann í dag.
Að minnsta kosti 10 börn í skólanum eru smituð af Covid-19 og verða allir nemendur skimaðir til að skera úr um hvort fleiri séu smitaðir.
Lokun Sandgerðisskóla í dag hefur víðtæk áhrif á atvinnulífið á suðurnesjum en um helgina var íþróttamiðstöðinni einnig lokað og hið sama má segja um allt félagsstarf ungmenna í bænum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum:
„Í samráði við aðgerðastjórn Suðurnesjabæjar hefur verið ákveðið að mánudaginn 8. nóvember fellur allt skólastarf niður hjá 1. – 5. bekk en hefðbundið skólastarf verður hjá nemendum í 6. – 10. bekk.
Eftir fyrstu skimun nemenda í smitgát var tilkynnt um eitt covid – 19 smit og af þeirri ástæðu ætlum við að loka skólanum að hluta á mánudaginn, eða þangað til allir nemendur sem eru í smitgát eru búnir að fara í seinni skimun og fá niðurstöður úr þeim.“