Lögregla handtók í gærkvöldi karlmann sem grunaður er um rán í Reykjavík. Maðurinn neitaði að segja til nafns og var afar ósamvinnuþýður. Auk þess fór hann ekki að fyrirmælum lögreglu og endaði það því með því að hann var handtekinn. Maðurinn gistir í fangageymslu.
Síðar um kvöldið barst lögreglu tilkynning frá íbúa í Reykjavík sem tilkynnti um innbrot. Eitthvað af verðmætum var tekið en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort einhver sé grunaður um verknaðinn. Í Hafnarfirði hringdi íbúi í lögreglu vegna einhvers sem virtist vera biluð ljósapera. Tilkynnandi sagði blikkandi ljós úr íbúð en ekki þótti ástæða til þess að grípa til aðgerða og skipta um peruna. Þá sinnti lögregla reglubundnu umferðareftirlitinu.