Guðmundur Elís Sigurvinsson var handtekinn í gær eftir að leitað var 15 ára stúlku. Hún fannst um borð í skipi sem Guðmundur starfar á og viðurkenndi hann að stúlkan væri með honum í för. Hann var laus úr haldi að loknum skýrslutökum.
Guðmundur Elís er dæmdur ofbeldismaður. Fyrrum kærasta hans kom fram og greindi frá hrottalegu ofbeldi sem Guðmundur beitti hana. Einnig gekk hann í skrokk á barnsmóður sinni. Hann var handtekinn árið 2021, grunaður um nauðgun í Vestmannaeyjum.
Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum staðfesti þetta í samtali við Vísi. „Nei það verður ekki farið fram á gæsluvarðhald, það er ekkert tilefni til þess.“ Hann segir lögregluna í Vestmannaeyjum bíða eftir skýrslu frá Suðurnesjum og að staðan verði tekin í kjölfarið.