Helstu ráðherrar ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttir svara ekki spurningum Mannlífs um mál Palestínufólksins sem fengið hefur samþykkt um fjölskyldusameiningu en ættingjar þeirra búa hér á landi. Tíminn er að renna út.
Mannlíf sagði frá því á dögunum að Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála og vinnumálaráðherra hunsi ítrekaðar beiðnir um fund með samtökunum Solaris, No Borders og Ísland – Palestína, um stöðu um stöðu Palestínufólks á Íslandi, sem fengið hefur samþykkta fjölskyldusameiningu.
Mannlíf sendi spurningar þann 8. janúar á Guðmund Inga, Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson, utanríkisráðherra og Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra, um það hvar mál Palestínufólksins stæði, í ljósi þess að yfirvöld í Svíþjóð hafi náð fólki, með dvalarleyfi í Svíþjóð, frá Gaza og þannig bjargað lífi þess. Spurði Mannlíf hvort yfirvöld á Íslandi væri almennt að vinna að því að bjarga fólkinu.
Þá beindi Mannlíf eftirfarandi spurningu til Guðmundar Inga, félagsmála og vinnumálaráðherra:
„Af hverju hefur þú ekki svarað ítrekuðum beiðnum hjálparsamtakanna Solaris, No Borders og Ísland-Palestína, um fund vegna fjölskyldusameiningarinnar?“
Þar sem engin svör bárust, ítrekaði Mannlíf spurningar sínar þann 12. janúar en enn bólar ekkert á svörum.
Nýjustu tölur látinna á Gaza og á Vesturbakkanum eru að minnsta kosti 24,190 manns. Þar af hafa að minnsta kosti 9.600 börn verið drepin þar síðan 7. október. Þá hafa að minnsta kosti 60,317 manns slasast í árásum Ísraelshers. Klukkutíma eftir að þessi frétt birtist munu 10 Palestínumenn hafa dáið en 250 manns eru drepnir á hverjum degi í Palestínu um þessar mundir.