Við erum að fara í gegnum þetta leiðindamál,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson þingflokksformaður Flokks fólksins um Twitterfærslu Tómasar Tómassonar sem farið hefur eins og eldur um sinu um samfélagsmiðla í dag.
Í færslunni birtir Tómas skjáskot af einkasamtali við félaga sinn þar sem umræðuefnið virðist vera vændiskaup hans í Bangkok í Tælandi. Færslan er að margra mati afar ógeðfelld.
Að sögn Guðmundar Inga eru ákveðin leiðindi á bak við málið.
„Þetta er fullorðinn einstaklingur sem var ekki á þingi þegar þetta fór fram. Það eru ákveðin leiðindi á bak við þetta.“
Aðspurður segir Guðmundur Ingi mögulega afsögn Tómasar meðal þess sem þingflokkurinn muni ræða í dag.
„Þetta er það sem þingflokkurinn verður að skoða og taka ákvörðun um. Við munum ræða þetta mál fram og til baka og finna niðurstöðu.Vonandi náum við því í dag, en eins og ég segi þá eru sumir í veikindaleyfi þannig þetta getur tekið tíma,“ segir Guðmundur og vísar þar til formanns flokksins, Ingu Sæland. Sjálfur er Guðmundur staðgengill formanns meðan Inga er í veikindaleyfi.
Var Tómas búinn að ræða þetta við þingflokkinn áður en hann birti færsluna?
„Nei ekki mig,“ segir Guðmundur. „Þetta kom mér algjörlega á óvart.“