Guðrún Jónsdóttir er látin, hún var 91 árs gömul. Heimildin greindi frá.
Guðrún fæddist árið 1931 og var mikil baráttukona alla ævi.
Hún tók þátt í stofnun Stígamóta, Kvennaathvarfs, Vinstri Grænna og Samtaka kvenna á vinnumarkaði. Hún var einnig oddviti Kvennaframboðsins og sat í borgarstjórn í fjögur ár. Fyrir síðustu jól gaf blaðamaðurinn og ritstjórinn Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir út ævisögu Guðrúnar, sem ber nafnið Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg, þar sem hún ræddi meðal annars um kynferðislegt áreiti sem hún varð fyrir í borgarstjórn.
Guðrún lauk doktorsgráðu frá Háskólanum í Sheffield árið 1991 og var sæmd riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2007.
Guðrún lætur eftir sig eina dóttur.