Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands hins nýja, er ekki þekktur fyrir að skafa af hlutunum. Í nýrri færslu á Facebook kemur hann með anso dökka spá um framhald heilbrigðiskerfisins á Íslandi og notar tækifærið og sendir Bjarna Benediktsson pillu. Við færsluna hlekkjar hann á frétt frá Vísir.is um uppsagnir hjúkrunarfræðinga á bráðavaktinni.
„Ástandið er slæmt og það mun versna áður en það versnar enn meira. Þá verður tekið til við að einkavæða og stuttu síðar verður selt inn á bráðavaktina. Einhvern veginn svona hlýtur planið að vera. Svo mun Bjarni Benediktsson útskýra fyrir okkur hversu hissa hann var þegar hann frétti að pabbi sinn hafði keypt röntgendeildina.“