Málskotsbeiðni Jóns Baldvins Hannibalssonar hefur verið hafnað af Hæstarétti, í máli fyrrverandi ráðherrans og sendiherrans, þar sem hann var dæmdur í tveggja mánðaa skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn Carmen Jóhannsdóttur á Spáni árið 2018.
Mbl segir frá málinu. Í málskotsbeiðninni vísaði Jón Baldvin meðal annars til þess að hann teldi ekki liggja fyrir óyggjandi sönnun um að háttalag hans sem hann er sakaður um í ákærunni, væri refsiverð samkvæmt lögum á Spáni. Einnig taldi hann annmarka vera á sönnunarmati Landsréttar sem gætu leitt til þess að dómurinn yrði ómerktur og vísaði hann til framburðar Carmenar og móður hennar sem hann taldi í mörgum tilfellum mótsagnarkenndan.
Þá vísaði Jón Baldvin einnig til þess að hann hafi upprunalega verið sýknaður af ákærunni í héraðsdómi en sakfelldur í Landsrétti og því fullnægi málið þeim skilyrðum um veitingu leyfis til áfrýjunar.
Á þetta féllst Hæstiréttur ekki á og seigr að er horft sé til ganga í málinu, verði hvorki séð að málið snúi að atriðum er hafi mikla almenna þýðingu né að af öðrum ástæðum sé mjög mikilvæg að fá úrlausn Hæstaréttar.
Mannlíf heyrði í Jóni Baldvini og bauð honum að tjá sig um synjun Hæstaréttar. „Svarið er no comment,“ svaraði Jón Baldvin snaggaralega.