Talsverður erill var hjá lögreglunni í nótt en mikið var um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Alls voru sex bifreiðar stöðvaðar vegna þess háttar glæps.
Tilkynning barst vegna líkamsárásar í Háaleitinu en einn einstaklingur var handtekinn grunaður um árásina. Var hann vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Þá óskaði húsráðandi í Hafnarfirði eftir aðstoð lögreglu eftir ljóta aðkomu er hann kom heim til sín. Búið var að brjótast inn í íbúðina og skemma mikið af innbúinu. Umferðaróhapp varð einnig í Hafnarfirðinum en einhver meiðsl urðu en engar upplýsingar fengust hjá lögreglu um alvarleika þeirra. Báðar bifreiðarnar voru fjarlægðar með dráttarbíl.
Í Kópavoginum var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna einstaklings sem var til vandræða á veitingastað. Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Breiðholtinu.
Í Grafarvoginum var búðarþjófur nappaður en honum var sleppt eftir skýrslutöku.
Í hverfi 110 valt bifreið en engar frekari upplýsingar um málið var skráð í dagbók lögreglu.