Þriðjudagur 15. október, 2024
6.7 C
Reykjavik

Halla boðar til kosninga: „Virkt lýðræði krefst skoðanaskipta“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Halla Tómasdóttir hefur sent frá sér yfirlýsingu sem snýr að beiðni Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um þingrof en í henni staðfestir forsetinn þingrof og verður því boðað til kosninga 30. nóvember.

Hægt er að lesa yfirlýsingu Höllu hér fyrir neðan:

Í gær lagði Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fram tillögu um þingrof.
Ég tók við þeirri tillögu en gaf mér jafnframt tíma og svigrúm til að
gaumgæfa stöðuna. Ég hef nú rætt við formenn samstarfsflokkanna í
ríkisstjórn og við formenn annarra þingflokka og kannað hug þeirra til
þingrofs og kosninga. Nú í morgun ræddi ég jafnframt við forseta
Alþingis. Að loknum þeim samtölum met ég stöðuna svo að
heillavænlegast sé fyrir þing og þjóð að gengið verði til kosninga.

Því hyggst ég fallast á þá tillögu forsætisráðherra að þing verði rofið.
Samkvæmt 24. grein stjórnarskrár skal boða til kosninga áður en 45 dagar
eru liðnir frá formlegri tilkynningu um þingrof. Á næsta fundi Alþingis,
fimmtudaginn 17. október, verður þingrof tilkynnt og fara kosningar fram
30. nóvember næstkomandi.

Forsætisráðherra gekk á minn fund hér á Bessastöðum í dag og baðst
lausnar fyrir sig og ríkisstjórn sína. Ég hef fallist á þá lausnarbeiðni hans.
Í samræmi við stjórnskipunarvenju bað ég fráfarandi ríkisstjórn að sitja
áfram sem starfsstjórn uns tekist hefur að mynda nýja ríkisstjórn.
Frumskylda mín sem forseta er að tryggja að í landinu sé starfhæf
stjórn. Ríkisstjórn sem beðist hefur lausnar situr sem starfsstjórn til
bráðabirgða. Í því felst að hún gegnir þeim störfum sem nauðsynleg eru
við daglega stjórn landsins. Þingmenn halda umboði sínu til kjördags og
geta því lokið mikilvægum málum sem fyrir þinginu liggja.

Senn göngum við til kosninga. Ég vil af því tilefni beina þeirri ósk til
þings og þjóðar að við vöndum okkur í samtalinu sem fram undan er og
varðar framtíð þessarar þjóðar. Virkt lýðræði krefst skoðanaskipta og í
heilbrigðu samfélagi getum við öll skipst á skoðunum með virðingu,
mennsku og heiðarleika að leiðarljósi.

- Auglýsing -

Kosningabarátta er nú í reynd hafin og vil ég leyfa því lýðræðislega
ferli að hafa sinn gang án afskipta forseta. Ég mun því ekki svara
spurningum fjölmiðla í dag. Þakka ykkur fyrir.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -