- Auglýsing -
58 mál voru bókuð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á næturvaktinni, og segir í dagbók lögreglunnar að nóttin hafi verið nokkuð róleg. Tveir voru vistaðir í fangageymslu og sex grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis/fíknefna.
Tvö mál vegna heimilisofbeldis komu á borð lögreglunnar, og í öðru málinu kom til handtöku og vistunar í fangageymslu.
Nokkur mál vegna kvartana yfir hávaða og ónæði.