Sjálfstæðismenn eru afar samstíga þessa dagana í umræðunni um hælisleitendur á Íslandi. Fyrrum ríkisstarfsmaðurinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir að innviðirnir séu að „springa“ vegna fjöldi hælisleitenda.
Hannes Hólmsteinn, nýfrjálshyggjumaður mikill, segir að ekki sé „þverfótað fyrir útlendingum“ á biðstofunni í Heilsugæslutöðinni sem hann sækir.
„Innviðirnir eru að springa. Tannlæknirinn minn segir mér, að Tryggingastofnun greiði helminginn af kostnaði mínum við tannviðgerðir, en allan kostnað fyrir hælisleitendur, auk þess sem þeir fá greitt fyrir leigubíl til og frá tannlækninum. Ekki verður þverfótað fyrir útlendingum á biðstofunni í Heilsugæslustöðinni í miðbæ, þar sem ég sæki þjónustu, og þar tekur vikur eða mánuði að fá viðtal við heimilislækni. Farðu á biðstofuna á bráðamóttökunni eða á hagstofunni, flestallt fólkið útlendingar. Það eru miklu fleiri hælisleitendur hér hlutfallslega en á öðrum Norðurlöndum. Húsnæðismarkaðurinn er að springa (vissulega líka út af lóðaskortinum, sem Dagur veldur) og heilbrigðiskerfið að bresta.“
Fjölmargir taka undir með Hannesi en þó nokkrir eru ósammála honum. Gunnar Smári Egilsson sósíalistaforingi skýtur að vanda föstum skotum: „xD hefði átt að hugsa málin til enda þegar flokkurinn bauð fólki frá Venesúela stöðu flóttafólks. Líklega er xD heimskastur allra flokka í þessum heimi.“