- Auglýsing -
Harður árekstur varð nú stuttu fyrir fjögur á krossgötum Laugavegar, Suðurlandsvegar og Kringlumýrarbrautar. Viðbragðsaðilar eru mættir á vettvang.
Rétt fyrir klukkan 16:00 í dag varð harður árekstur tveggja bíla nálægt Brauð og co., þar sem Laugavegur mætir Suðurlandsvegi. Samkvæmt vitnum er lögregla og slökkvilið mætt á staðinn. Ekki er vita um slys á fólki en áreksturinn hefur valdið töluverðum töfum í umferðinni.
Fréttin verður uppfærð.