- Auglýsing -
„Þessi smávaxni háskólaborgari kætti í senn kennara og nemendur og fór jafnan sínar eigin leiðir á háskólasvæðinu,“ segir í færslu á facebook síðu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands minnist kattarins Rósalindar, sem oft var kölluð Rósalind rektor, á facebooksíðu sinni en hún dó fyrr í mánuðinum.
Þá segir að viðbrögð við dauða Rósalindar hafi verið mikil og ljóst að margir muni sakna kattarins.
„Við kveðjum þessa lærdómsfúsu læðu með bæði hlýhug og þakklæti.“