Undir frétt á fésbókarsíðu mbl.is þrífst hatursorðræða um þátttöku kvára í kvennaverkfallinu. Fjölmargir hafa ritað athugasemdir og opinberað skoðanir sínar. Fréttin sem um ræðir er vegna tilkynningar sem sveitarfélagið Árborg gaf út um að konum væri bannaður aðgangur í sundlaugina á Selfossi, á þriðjudaginn næstkomandi vegna kvennaverkfallsins. Fjölmargar konur hafa ákveðið að leggja niðurstörf og er lokunin, samkvæmt yfirlýsingu sveitarfélagsins, gerð af öryggisástæðum.
Á heimasíðunni kvennafri.is er þátttaka kvára útskýrð svohljóðandi: „Kynsegin fólk og konur eiga það sameiginlegt að vera jaðarsett af feðraveldinu, framlag þeirra vanmetið og þau verða fyrir ofbeldi í mun meira mæli en karlar.“
Yfir 200 athugasemdir hafa verið ritaðar við fréttina og má hér sjá brot af þeim athugasemdunum:
„Ég a mjög auðvelt að kyngreina bara sparka duglega i klofið þeir sem er karlmenn öskra“
„Eg vil fá gamla ísland aftur þar sem það eru strakar og stelpur , konur og kallar og það er hægt að segja hluti án þess að liðið brotni niður vælandi“
„Hættið þessi vók kvára kjaftæði.“
„Ef ég fengi dollara fyrir hvert kyn sem til er ætti ég tvo dollara“
„Ef rétt er haldið á spilum getur besta hommaveisla ársins átt sér stað á Selfossi á þriðjudaginn!!!!“
„Hver andskotinn er “kvár”“
„Má vinur minn sem upplifir sig sem karlkyns skógarþröst koma? hann býr í kjarri uppí heiðmörk og allt.“
„Loksins alvöru samræður í pottinum“
„Afsakið orðbragðið en Kvárans…“
„Stittist i að það verði grætt í okkur karlmenn leg“