Haukur Ágústsson, fyrrverandi kennari og skólastjóri, er lést á Akureyri 15. janúar síðastliðinn, 86 ára að aldri.
Fæddist Haukur í Reykjavík þann 3. nóvember árið 1937 en foreldrar hans voru Ágúst Jónsson járnsmiður og vélstjóri og Guðbjörg Helga Vigfúsdóttir húsfreyja.
Fram kemur í dánartilkynningunni á Akureyri.net að Haukur hafi verið kvæntur Hildu Torfadóttur, talmeinafræðingi og grunnskólakennara en hún lést árið 2019. Þau hjónin bjuggu á Akureyri frá árinu 1985 en þau eignuðust einn son, Ágúst Torfa, sem er verkfræðingur, fæddur 1974. Kona hans er Eva Hlín Dereksdóttir og eiga þau þrjár dætur, Ragnhildi Eddu, Bryndísi Evu og Hildu Kristínu. Haukur á eina systur, Katrínu Helgu Ágústsdóttur sem gift er Stefáni Halldórssyni.
Mannlíf sendir ættingjum og vinum Hauks innilegar samúðarkveðjur.