- Auglýsing -
Lögreglan á Suðurlandi leitar að Anítu Rós Dagbjartsdóttur. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi sést til Anítu fimmtudagskvöldið 5. október um klukkan 10. Þá var Aníta klædd í gráan jogginggalla og svartan jakka.
Aníta er 160 sentimetrar á hæð, með dökkt hár.
Þeir sem telja sig vita um ferðir Anítu Rós eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í 112.