Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðjóni Knútssyni, sem er 70 ára. Síðast er vitað um ferðir Guðjóns við Bríetartún 30 klukkan sex í fyrradag.
Tilkynning lögreglu hljóðar svo: „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðjóni Knútssyni, 70 ára karlmanni. Guðjón er grannvaxinn, um 175 sm. á hæð, gráhærður, með axlarsítt hár og notar gleraugu. Guðjón er klæddur í gráleitar gallabuxur, fjólubláa skyrtu, í prjónaðri kaðlapeysu, brúnum leðurskóm og svartri úlpu með hettu. Síðast er vitað um ferðir Guðjóns við Bríetartún 30 um kl. 18:00 síðdegis í gær. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Guðjóns eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.“