- Auglýsing -
Í tilkynningu frá HS Orku segir að hjáveitulögnin undir hrauninu sé farin í sundur. Unnið hefur verið dag og nótt við að koma aftur heitu vatni á svæði en svo virðist sem hjáveitulögnin hafi brostið endanlega þegar aukið var við vatnsdælinguna klukkan 22:30 í gærkveldi.
Þá segir:
„Staðsetningin er undir miðju hrauni, á þeim kafla þar sem það er þykkast, og því útilokað að ráðast í viðgerðir þar.“
Undirbúningur að lagningu nýrrar lagnar er hafinn og er hann gerður í nánu samstarfi við almannavarnir. Þó þykir ljóst að sú framkvæmd mun taka einhverja daga. Ekki er hægt að áætla nákvæmari tímasetningar á þessari stundu.
Íbúum og öðrum er bent á að fylgja leiðbeiningum almannavarna og HS Veitna varðandi viðbrögð í þessum erfiðu og krefjandi aðstæðum.
Hér má sjá tilkynninguna í heild: