Helga Vala Helgadóttir segir hatrið vella ítrekað frá Davíð Oddssyni, ritstjóra Morgunblaðsins.
Í færslu sem Helga Vala, þingmaður Samfylkingarinnar skrifaði á Facebook í gærkvöldi, setti hún hlekk við frétt mbl.is um yfirlýsingu Kennarasambands Íslands en sambandið fordæmir „hatursorðræðu“ Helgu Daggar Sverrisdóttur grunskólakennara á Akureyri. Kennarinn hefur legið undir ámæli síðan Morgunblaðið birti aðsenda grein eftir hann þar sem Helga Dögg fjallar um áhyggjur sínar vegna hinseginfræðslu Samtakanna´78 í grunnskólum landsins. Í greininni lýsti Helga Dögg þeirri skoðun sinni að fræðsla í skólum varðandi transmálefni sé móðgandi og vanvirðandi háttasemi sem stefni heilsu og þroska barna í hættu, en þessi atriði eru brot á 99. grein barnaverndarlaga.
Helga Vala hrósar yfirlýsingu Kennarasambandsins og segir að hatrið komi ekki aðeins frá Helgu Dögg, heldur velli „hatrið nú um samfélagið, meðal annars ítrekað frá ritstjóra Morgunblaðsins.“ Hvetur hún fólk til að standa saman og láta í sér heyra, til að mótmæla „hækkandi hatursorðræðu“.
Færsluna má lesa hér að neðan:
„Gott að lesa afdráttarlausa yfirlýsingu frá Kennarasambandinu gegn hatursorðræðu kennara gegn transfólki. Umræddur kennari er ekki ein, heldur vellur hatrið nú um samfélagið, meðal annars ítrekað frá ritstjóra Morgunblaðsins.