Nú þegar helgin er að renna í hlað er vert að vita hvert sækja megi sólina. Á höfuðborgarsvæðinu er spáð mildu veðri en skýjuðu. Það ætti víst að koma fáum á óvart að glampandi sól og blíðviðri verður austan lands og norðan.
Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands segir:
„Suðlæg átt 3-10 m/s, en 8-13 norðvestantil á morgun. Skýjað og sums staðar dálítil væta. Yfirleitt bjartviðri á Norður- og Austurlandi en líkur á stöku síðdegisskúrum þar. Hiti 10 til 23 stig að deginum, hlýjast í innsveitum austanlands.
Á sunnudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og sums staðar væta með köflum, en yfirleitt þurrt á Austur- og Suðausturlandi. Hiti 8 til 22 stig, svalast við norður- og vesturströndina, en hlýjast á Austurlandi.“