Helgi Jóhannesson, lögmaður, hélt fyrirlestur í Djúpavogskirkju í kvöld.
Í fyrirlestrinum sem ber heitið „Brimskaflar í boði lífsins“ fór Helgi yfir áföll og missi sem hann varð fyrir á síðastliðnu ári, fyrst þegar sonur hans svipti sig lífi í mars 2021 og síðar þegar hann missti starf sitt í kjölfar óásættanlegrar framkomu gagnvart samstarfskonu.
Í máli Helga kom fram að tilgangur með fyrirlestrinum væri ekki að fá samúð eða syndaaflausn, heldur lýsa því hvernig hann er að vinna úr áföllunum og þeim áskorunum sem þau hafa haft í för með sér fyrir hann og hans nánustu, ef það gæti verið öðrum sem berjast við mótlæti eða áföll af einhverju tagi til stuðnings.
Helgi segir í fyrirlestrinum að stuðningur vina og ættingja og sérfræðiaðstoð að ýmsu tagi hafi hjálpað honum hvað mest í bataferlinu. Einnig hefur hann leitað mikið í náttúruna og útivist.
Helgi flytur annan fyrirlestur á morgun í safnaðarheimilinu á Reyðarfirði klukkan 17.