Laugardagur 22. febrúar, 2025
3.8 C
Reykjavik

Hilmar Fjeldsted er fallinn frá

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hilm­ar Fjeld­sted Lúth­ers­son, pípu­lagn­inga­meist­ari og mótor­hjóla­maður, lést að heim­ili sínu 20. fe­brú­ar síðastliðinn, 86 ára að aldri.

Í dánarfrétt mbl.is kemur fram að Hilmar hafi fæðst 26. ágúst 1938 í Reykjavík. Foreldrar Hilmars voru Lúther Salómonsson og Sveinsína Oddsdóttir en systikini hans voru Sverrir (samfeðra), Sigríður, Jóhann og Reynir.

Frá fjögurra ára aldri bjó Hilmar í Kópavogi en árið 2004 flutti hann á Selfoss og árið 2015 til Hafnarfjarðar. Kvæntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Guðmundu Kolbrúnu Guðmundsdóttur árið 1963. Bjuggu þau í Lundarbrekku í Kópavogi og starfaði Hilmar þá við pípulagnir. Árið 1980 fluttu hjónin að Hlíðarvegi 5a. Samkvæmt mbl.is var þar góður bílskúr þar sem Hilmar hóf að rækta mótorhjólabakteríuna.

Hilmar var einn af stofnfélögum Bifhjólasamtaka Lýðveldisins, Snigla en þegar Sniglarnir voru stofnaðir árið 1984 var Hilmar nokkru eldri og reyndari en aðrir í samtökunum. Naut hann takmarkalausrar virðingar innan Sniglanna og var honum í heiðurskyni úthlutað Sniglanúmerinu #1. Í Sniglunum var hann yfirleitt kallaður „Old Timer“ en smám saman breyttist það í „Tæmerinn“.

Þegar árin færðust yfir varð Hilmar duglegri við að gera upp gömul mótorhjól en hann var einstaklega fær við þá iðju og naskur að finna eða smíða varahluti sem vantaði, sem aðrir töldu ófáanlega með öllu. Fjölmörg listilega vel uppgerð mótorhjól liggja eftir Hlmar, af öllum gerðum og stærðum.

Börn þeirra Hilm­ars og Guðmundu eru Auður Sól­veig, Atli (lést 1998), Sveinn Fjeld­sted og Hrafn­hild­ur Fjeld­sted.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -