Hjalti Már Björnsson, læknir á bráðamóttöku Landspítalans, segist í pistli sem hann birtir á Facebook taka eftir ákveðnum langvinnum áhrifum af COVID faraldrinum. Þau séu fyrst og fremst félagsleg en hann hvetur almenning til að vera duglegra við að gera sér glaðan dag, fara á tónleika eða í heimsókn til vina og vandamanna.
Pistill Hjalta í heild sinni
Ég er farinn að hallast að því að ein helstu langvinnu áhrif covid faraldursins séu félagsleg. Vissulega sitja einhver eftir með líkamleg langvinn einkenni eftir sýkingu en félagslífið á Íslandi er verulega laskað.
Aðsókn á tónleika og leikhús hefur víst minnkað um 20%. Ég þekki til margra matarklúbba og saumaklúbba sem venjulega hittust reglulega en hafa ekki náð sér í gang aftur eftir covid. Fólk virðist fara minna í heimsóknir og allt of mörg sitja aðallega heima starandi á skjáinn.
Það lítur út fyrir að samblandan af löngum tímabilum í sóttkví og tilkomu endalausrar afþreyingar í streymisveitum sé að auka enn á faraldur félagslegrar einangrunar, sem er eitt af stóru vandamálum samtímams.
Félagslíf gerist ekki sjálfkrafa, það þarf að rækta. Ég held við ættum öll að drífa okkur meira út, fara í heimsóknir, leikhús eða tónleika. Halda matarboð eða bara kíkja í heimsókn og hitta fólk