Laugarneskirkja hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kirkjan hefur ákveðið að afþakka heimsóknir skólabarna á vegum skólans á aðventunni sem er í vændum.
Tilkynning frá Laugarneskirkju:
„Um áraraðir hafa heimsóknir skólabarna í Laugarneskirkju verið fastur liður í aðventuhaldi og jólaundirbúningi bæði kirkjunnar og skólans.
Á seinni árum hefur tekið að gæta andstöðu við þessar heimsóknir meðal sumra foreldra og hafa börn verið tekin út úr hópnum á meðan skólasystkin þeirra hafa komið í heimsókn til okkar. Okkur í Laugarneskirkju hefur sárnað eilítið þessi tortryggni foreldra í garð þessara heimsókna, enda einungis um að ræða vettvangsferð í samfélagsfræðslu.
Kirkjan er hluti af samfélagi okkar – hvað sem hverjum kann að finnast um það.
Ferðir þessar hafa verið að frumkvæði skólans og að öllu leyti á hans forsendum. Þeir kennarar og skólastjórnendur sem fylgt hafa börnunum geta vottað um að þar á sér ekkert stað sem kalla má trúboð eða trúariðkun, aðeins fræðsla.
Dagskrá heimsóknanna hefur verið búin til í skólanum, ekki kirkjunni. Þrátt fyrir þetta hefur andstaðan við þessar heimsóknir farið vaxandi ár frá ári og valdið ágreiningi á milli þeirra sem vilja halda í þessa hefð og hinna sem vilja að hún leggist af.
Við í Laugarneskirkju viljum ekki vera í þeirri stöðu að valda ágreiningi í nærsamfélagi okkar. Við viljum ekki heldur vera þess valdandi að börn séu útilokuð frá þátttöku í hluta skólastarfsins. Við viljum að um okkar góða starf ríki sátt og friður.
Því höfum við tekið þá ákvörðun að afþakka heimsóknir skólabarna á vegum skólans á aðventunni sem er í vændum.
Okkur er óljúft að taka þessa ákvörðun, en til að kirkjan geti sinnt starfi sínu í næði viljum við forðast að um hluta þess standi styr sem þessi – jafnvel þótt hann sé að okkar mati ástæðulaus og óþarfur.
Þess í stað verður boðið upp á dagskrá fyrir skólabörn í Laugarneskirkju alla fyrstu viku aðventunnar á milli kl. 3 og 5. Börn á grunnskólaaldri eru velkomin í kirkjuna á þeim tíma og við munum gera okkur glaðan dag, lesa jólaguðspjallið, syngja jólalög og eiga góða stund saman við bæn og tilbeiðslu.
Hvetjum við foreldra til að nýta sér það og kíkja í heimsókn til okkar.
Í Guðs friði, f.h. Laugarneskirkju Sr. Davíð Þór Jónsson, prestur í Laugardalsprestakalli.
„Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er Guðs ríki.“ (Lúk 18.16)