Sá sem skildi 72 ára fatlaða konu eftir við ókunnuga blokk seint á aðfangadagskvöld er bílstjóri Hópferða, sem sá um akstur á fötluðum fyrir Strætó. Framkvæmdastjóri Strætó lítur málið mjög alvarlegum augum.
Mannlíf sagði fyrst fjölmiðla frá hræðilegu atviki sem varð seint á aðfangadagskvöld í Mosfellsbænum þegar 72 ára andlega fötluð kona, sem er illa komin á sig líkamlega, var skilin eftir af bílstjóra Hópferða, við ókunnuga blokk, í stað þess að vera skutlað heim til sín á sambýli í Norðurhlíð. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó segir í samtali við Mannlíf að litið sé á málið alvarlegum augum. „Við lítum málið mjög alvarlegum augum og farið verður ítarlega yfir verkferli og þeir endurskoðir til að lágmarka að slíkt endurtaki sig.“
Hvorki náðist í forstöðumann sambýlisins né framkvæmdastjóra Hópferða við gerð fréttarinnar en starfsmaður Hópferða sem svaraði í síma er Mannlíf reyndi að hafa upp á framkvæmdarstjóranum tjáði blaðamanni að hann væri ekki í húsi og neitaði sjálfur að svara fyrir afglöpin, það sé aðeins í höndum framkvæmdastjórans..