Lögreglu barst í gærkvöld tilkynning um yfirstandandi innbrot í sjoppu. Er lögreglu bar að garði var meintur innbrotsþjófur hinn rólegast og gæddi sér á mat fyrir utan sjoppuna. Kom þá í ljós að málið var byggt á misskilningi því sjoppan var opin allan sólarhringinn og var meintur þjófur einfaldlega svangur viðskiptavinur.
Fyrr um kvöldið hafði lögregla afskipti af ungmennum sem neyttu fíkniefna. Ungmennin reyndust einnig hafa nokkurt magn fíkniefna í tösku sem þau höfðu meðferðis og hafði lögregla bæði samband við foreldra og sendu tilkynningu á barnavernd. Þá fór lögregla á vettvang í austurbænum þar sem íbúi hafði látið vita af tveimur mönnum að drekka áfengi í bifreið. Þegar lögregla kom á vettvang voru mennirnir utan við bifreiðina og því ekki ástæða fyrir lögreglu að hafa frekari afskipti af þeim. Engin vitni urðu að mönnunum við akstur. Einn ökumaður var handtekinn er lögregla sinnti reglubundnu umferðareftirliti. Sá reyndist vera undir áhrifum vímuefna en auk þess fundust fíkniefni í bifreið viðkomandi.