Óvenjulítið var frétta í dagbók lögreglunnar í nótt en hér fyrir neðan er samantekt af því helsta
Þrír voru handteknir skömmu eftir að brotist hafði verið inn í verslun. Aðilarnir eru grunaðir um að hafa brotið rúðu í verslun í hverfinu og haft á brott með sér vörur.
Þá var lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps þar sem einn aðili fór af vettvangi áður en lögregla kom á staðinn og málið í rannsókn.
Aðeins einn ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna. Þá var lögreglan kölluð til vegna þjófnaðar í tveimur verslunum en ekki er greint frá því hvaða verslanir það voru Svo var einnig tilkynnt um þjófnað í tveimur verslunum og var málið leyst á vettvangi.