- Auglýsing -
Hringveginum hefur verið lokað vegna umferðarslyss á veginum en um er að ræða gatnamót Hvalfjarðarvegar og Hringvegar, sem er stutt frá Akranesi.
Vegagerðin segir í tilkynningu að hægt sé að nýta Leirársveitarveg og Svínadalsveg sem hjáleiðir og ekki liggi fyrir hvenær vegurinn verður opnaður á ný.
Að sögn mbl.is er um alvarlegt umferðarslys að ræða en fólksbíll og vöruflutningabíll lentu saman. Þrír einstaklingar hafa verið fluttir á slysadeild en ekki er vitað um líðan þeirra.