Í nógu var að snúast hjá lögreglu seinnipart gærdagsins og í nótt. Rétt eftir klukkan átta í gærkvöld var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna hópárásar í Breiðholti. Árásargengi réðst á einstakling og lömdu hann með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut minnisháttar höfuðáverka.
Rétt eftir miðnætti var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárás í Hafnarfirði. Óður maður barði annan illilega í andlitið með glasi. Sá grunaði var handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Lögregla sinnti útkall vegna þriggja annarra líkamsárása í gær og nótt, þar á meðal í miðborginni, Kópavogi og í hverfi 105.
Um kvöldmatarleytið var maður handtekinn í Hafnarfirði eftir að hafa haft í hótunum, gengið berserksgang og eyðilagt muni annars.
Tilkynnt var um þjófnað í verslun í Grafarvogi í gær. Reyndist þjófurinn vera undir lögaldri og verður málinu því sent til barnaverndarnefndar.