Fimmtudagur 26. desember, 2024
3.8 C
Reykjavik

Húsnæðiskreppa í borginni: „Stofna byggingarfélag og fjarlægja milliliði“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Borgarstjórnarflokkur Sósíalista kynnir tillögu sína í húsnæðismálum  – í borgarstjórn í næstu viku. Í henni felst að Reykjavíkurborg stofni byggingarfélag. Samkvæmt Sósíalistaflokksins þekkist þetta fyrirkomulag í borgum víða í kringum okkur og hefur hjálpað við að koma skikk á húsnæðiskreppuna.

Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um stofnun byggingarfélags
Reykjavíkurborgar

„Borgarstjórn samþykkir að fela viðeigandi sviðum innan borgarinnar að hefja nú þegar
undirbúning að stofnun byggingarfélags Reykjavíkurborgar, sem hefur það að
markmiði að byggja íbúðir fyrir þær manneskjur og fjölskyldur sem eru í mestum
húsnæðisvanda. Markmið byggingarfélagsins verði að sjá um allt ferlið frá upphafi til
enda og er umhverfis- og skipulagssviði falið að skoða hvernig megi útfæra slíkt, í
samvinnu við velferðarsvið og fjármála- og áhættustýringarsvið borgarinnar. Þar þarf
að skoða innflutning byggingarefnis og möguleg magninnkaup sem standa þar til boða
og útfæra hugmyndir um ráðningar í verkin. Hlutverk byggingarfélagsins verði að sjá
um uppbyggingu íbúðanna á borgarlandi og leigja út íbúðirnar í óhagnaðardrifnum
rekstri.“

Sósíalistar í borginni vilja að uppbyggingin og útleigan komi beint inn á borð borgarinnar en með því megi fjarlægja þá milliliði sem leitast við að græða á húsnæðisuppbyggingu og útleigu íbúða út úr jöfnunni, sem skilar sér í lægra leiguverði fyrir borgarbúa.

Greinargerð:

„Húsnæðiskreppa ríkir í borginni þar sem mikill skortur er á íbúðum, slíkt hefur sprengt
upp leiguverð á almennum leigumarkaði og gerir manneskjum í húsnæðisvanda erfitt
fyrir. Það er nauðsynlegt að borgin grípi inn í aðstæður af aukinni alvöru og sjái um að
byggja fyrir borgarbúa sem eru í mestri neyð. Með uppbyggingu byggingarfélags
Reykjavíkurborgar getur borgin skapað húsnæðisfélag sem er algjörlega aðskilið
fyrirtækjum með gróðasjónarmið í huga. Eins og staðan er núna koma margir aðilar
að uppbyggingu húsnæðis í borginni. Með því að koma hluta af uppbyggingunni og
útleigunni beint inn á borð borgarinnar má fjarlægja þá milliliði sem leitast við að græða
á húsnæðisuppbyggingu og útleigu íbúða út úr jöfnunni, sem skilar sér í lægra
leiguverði fyrir borgarbúa. Það er nauðsynlegt að tryggja að nægar íbúðir séu í boði
en húsnæðiskreppan grefur sífellt undan lífskjörum almennings, þó auðvitað mest
hinna verst settu og það er á ábyrgð borgarinnar. Það er fullreynt að líta til markaðarins
í von um að hann veiti lausn á vandanum. Við þurfum að koma félagslegum lausnum
í framkvæmd og byggingarfélag Reykjavíkur yrði þar kröftug viðbót inn í
húsnæðisuppbygginu á meðan unnið er að því að styrkja önnur óhagnaðardrifin
leigufélög og styðja íbúðauppbyggingu á vegum verkalýðsfélaganna.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -