Fimmtudagur 26. desember, 2024
3.8 C
Reykjavik

Hver áhorfandi gat kosið 40 sinnum – Símakosningin skilaði RÚV 37 milljónum króna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tæplega 37 milljónir runnu til RÚV vegna símakosningar Söngvakeppninnar. Kostnaður Ríkisútvarpsins ku vera 125 milljónir við keppnina og skilar því símakosningin ein og sér um þriðjungi, segir í frétt á Vísi.is. Þá bætast við tekjur stofnunarinnar vegna auglýsingasölu og miðasölu á; undanúrslitakeppnina, dómararennslið og úrslitakvöldið.

Heildarfjöldi atkvæðanna var 200.811 og kostaði hvert greitt atkvæði 184 krónur. Er það talsvert minna en í keppninni í fyrra en þá voru greidd 251.471.

Hver áhorfandi gat kosið 40 sinnum. 20 sinnum í gegnum símtal eða með sms, og 20 sinnum var hægt að kjósa með smáforritinu RÚV-stjörnur.

Hera bar nauman sigur úr bítum með 100.835 atkvæðum á meðan Bashar Murad fékk 97.495 atkvæði.

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -