Íbúi á höfuðborgarsvæðinu brá heldur betur í brún í gær þegar hann áttaði sig á að brotist hafði verið inn heima hjá honum. Hann hringdi strax á lögreglu sem kom á vettvang en samkvæmt dagbók lögreglu er málið í rannsókn. Fyrr um kvöldið var lögregla kölluð til vegna manns í annarlegu ástandi sem hafði ítrekað angrað gesti á bar í miðbænum. Lögregla ræddi við manninn og bað hann um að yfirgefa staðinn sem hann gerði og sagðist hann ætla að ganga til síns heima.
Skömmu síðar hafði lögregla afskipti af óvelkomnum manni á stigagangi. Lögregla fór og ræddi við manninn og gekk hann sína leið. Athugull íbúi hafði samband við lögreglu eftir að hann varð var við menn sem reyndu að brjótast inn í bíla. Mennirnir voru farnir þegar lögregla kom á vettvang. Þá barst lögreglu heldur óvanalegt útkall þegar eldur logaði í trampólíni. Bæði lögrega og slökkvilið fóru á vettvang en grunur er að um íkveikju hafi verið að ræða. Þá sinnti lögregla einnig reglubundnu umferðareftirliti og öðrum minniháttar málum.